Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps vertu velkomin/n á heimasíðu félagsins

Fréttir 2020

 Lítil starfsemi var í félaginu árið 2020 út af covid 19 og var enginn fundur haldinn innan félagsins af þeim sökum.

En hér er samt úrdráttur úr skýrsluhaldinu líkt og birtur hefur verið hér undanfarin ár:

Alls eru í uppgjörinu 1.629 fullorðnar ær, þeim hefur fjölgað um 9 frá síðasta ári. Skýrslufærðar voru 357 veturgamlar ær, sem er fækkun um 38 milli ára. Meðalafurðir voru 29,77 kg eftir hverja fullorðna á í félaginu, sem er 0,24 kg minna en haustið 2018. Hjá einstökum félögum voru mestar afurðir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 34,8  kg eftir fullorðna á. Hver veturgömul ær í félaginu skilaði að jafnaði 11,51 kg sem er 0,28 kg meira en á síðasta ári. Mestum afurðum eins og hjá fullorðnu ánum skiluðu gemlingarnir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 20,6 kg. Eftir hverja á í félaginu fæddust 1,89 lömb en 1,72 komu til nytja. Meðalfallþungi dilka í félaginu var 17,11 kg sem er 0,20 kg minna en haustið 2018. Hæstur fallþungi var hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi, 19,7 kg. Meðalflokkun lamba í félaginu var 9,15 fyrir vöðva og 6,48 fyrir fitu. Vöðvaflokkunin lækkar um 0,05 frá síðasta ári og fitan lækkar um 0,16. Besta vöðvaflokkun var hjá Guðmundi og Sigrúnu Staðarbakka 10,13.

Hæst stigaðisti lambhrútur innan félagsins haustið 2019 var í eigu Stefáns og Elisabeth á Ytri-Bægisá 2. Hrútur þessi hefur nú hlotið nafnið Örvar 19-189 og er er í eigu Hákons Þórs á Staðarbakka. Hann er fæddur þrílembingur en gekk undir sem tvílembingur. Hann vó 48 kg. Ómtölur hans voru þessar: 29 mm ómv 4,4  mm ómf og 5,0 óml. Fótleggur er 110 mm. Stigun hans var: Haus 8,0 - h/h 9,0 - b/útl. 9,0 - bak 9,0 - malir 9,0 - læri 19,0, ull 8,0 - fætur 8,0 og samræmi 8,5  = 87,5 stig. Hrútur þessi er undan Þela 14-739, og á nr 11-021.

     Myndin er af Örvari 19-189 veturgömlum haustið 2020
Flettingar í dag: 364
Gestir í dag: 50
Flettingar í gær: 320
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 50505
Samtals gestir: 12026
Tölur uppfærðar: 16.5.2024 12:35:21
clockhere

Um félagið

Nafn:

Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps

Farsími:

Unnar Sturluson 779-0269 formaður

Afmælisdagur:

Stofnað 17. mars 1964

Heimilisfang:

Þúfnavellir

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

Unnar Sturluson 462-6754 formaður

Um:

Vef- og ritstjóri heimasíðunnar er Guðmundur Skúlason s. 846-1589

Kennitala:

431008-1650

Bankanúmer:

566-04-250446

Tenglar