Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps vertu velkomin/n á heimasíðu félagsins

Fréttir 2018

29. mars 2018

 Í kvöld var aðalfundur Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps haldinn á Staðarbakka.  Alls sátu 15 manns fundinn, sem verður að teljast góð mæting í félagi þar sem skráðir félagar eru 20. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf m.a. að fara yfir niðurstöður skýrsluhaldsins fyrir síðasta ár. Hér er kafli úr fundargerðinni þar sem fjallað er um helstu niðurstöðurnar. 

Guðmundur ritari félagsins lagði fram uppgjör félagsins fyrir síðasta ár. Alls eru í uppgjörinu 1.592 fullorðin ær, þeim hefur fjölgað um 15 frá síðasta ári. Skýrslufærðar voru 366 veturgamlar ær, sem er fækkun um 21 milli ára. Meðalafurðir voru 29,85 kg eftir hverja fullorðna á í félaginu, sem er 1,25 kg minna en haustið 2016. Hjá einstökum félögum voru mestar afurðir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 36,8  kg eftir fullorðna á. Hver veturgömul ær í félaginu skilaði að jafnaði 13,14 kg sem er 0,57 kg meira en á síðasta ári. Mestum afurðum, eins og hjá fullorðnu ánum, skiluðu gemlingarnir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 18,7 kg.

Eftir hverja á í félaginu fæddust 1,92 lömb, en 1,77 komu til nytja. Meðalfallþungi dilka í félaginu var 17,01 kg sem er 0,89 kg minna en haustið 2016. Hæstur fallþungi var hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi, 19,6 kg. Meðalflokkun lamba í félaginu var 9,46 fyrir vöðva og 6,41 fyrir fitu. Vöðvaflokkunin lækkar um 0,18 frá síðasta ári og fitan um 0,97. Besta vöðvaflokkun var hjá Sigurði og Margréti, 10,60.

Allar skýrslurnar má sjá í heild hér á heimasíðunni.

  Að venju var afhentur farandbikar félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút innan félagsins á n.l. hausti og áletraður verðlaunapeningur til eignar.

  Að þessu sinni er það Hákon Þór Tómasson, Staðarbakka, sem er þessa heiðurs aðnjótandi.

Hér er Stefán Lárus formaður félagsins að afhenda Hákoni Þór verðlaunin.

Hrútur þessi hefur nú hlotið nafnið Kjarkur og er númer 17-176. Hann er einlembingur undan gemling og vó 51 kg. Ómtölur hans voru þessar: 30 mm ómv 4,1  mm ómf og 4,5 óml. Fótleggur er 109 mm. Stigun hans var: Haus 8,0 - h/h 9,0 - b/útl. 9,0 - bak 9,0 - malir 9,0 - læri 18,5, ull 9,0 - fætur 8,0 og samræmi 8,5  = 88,0 stig. Hrútur þessi er undan Brodda 15-703, sem var keyptur lambið frá Broddanesi 1, og Gróu 16-635 faðir hennar er Grímur 14-955.

Því miður er ekki til mynd af Kjark frá því í haust, þessi verður að duga þótt aldrei sé nú skemmtilegt að mynda hrúta á þessum árstíma.

Aðalfundur Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps verður haldinn á Staðarbakka, fimmtudagskvöldið 29. mars 2018 kl 20:00.

 Venjubundin aðalfundarstörf. Afhentur verður farandbikar félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút innan félagsins haustið 2017.

 Niðurstöður úr skýrsluhaldinu fyrir síðasta ár eru aðgengilegar á heimasíðu félagsins: sauður.123.is.

 Mætum öll og ræðum félags- og kynbótastarfið.

            Stjórnin.  

Gunnar Björnsson að fósturtelja hjá Stefáni Lárusi á Ytri Bægisá 2

  

Flettingar í dag: 375
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 320
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 50516
Samtals gestir: 12035
Tölur uppfærðar: 16.5.2024 14:18:31
clockhere

Um félagið

Nafn:

Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps

Farsími:

Unnar Sturluson 779-0269 formaður

Afmælisdagur:

Stofnað 17. mars 1964

Heimilisfang:

Þúfnavellir

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

Unnar Sturluson 462-6754 formaður

Um:

Vef- og ritstjóri heimasíðunnar er Guðmundur Skúlason s. 846-1589

Kennitala:

431008-1650

Bankanúmer:

566-04-250446

Tenglar