Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps vertu velkomin/n á heimasíðu félagsins

Fréttir 2017

21. apríl 2017

 Í kvöld var aðalfundur Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps haldinn á Þúfnavöllum.  Alls sátu 15 manns fundinn, sem verður að teljast góð mæting í félagi þar sem skráðir félagar eru 22. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf m.a. að fara yfir niðurstöður skýrsluhaldsins fyrir síðasta ár. Hér er kafli úr fundargerðinni þar sem fjallað er um helstu niðurstöðurnar. 

Guðmundur ritari félagsins lagði fram uppgjör félagsins fyrir síðasta ár. Alls eru í uppgjörinu 1.577 fullorðin ær, þeim hefur fjölgað um 6 frá síðasta ári. Skýrslufærðar voru 387 veturgamlar ær, sem er fækkun um 8 milli ára. Meðalafurðir voru 31,1 kg eftir hverja fullorðna á í félaginu, sem er 0,4 kg meira en haustið 2015. Hjá einstökum félögum voru mestar afurðir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 36,4  kg eftir fullorðna á. Hver veturgömul ær í félaginu skilaði að jafnaði 12,57 kg sem er 1,6 kg meira en á síðasta ári. Mestum afurðum, eins og hjá fullorðnu ánum, skiluðu gemlingarnir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 19,0 kg.

Eftir hverja á í félaginu fæddust 1,87 lömb, en 1,72 komu til nytja. Meðalfallþungi dilka í félaginu var 17,9 kg sem er 0,3 kg meira en haustið 2015. Hæstur fallþungi var hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi, 21,1 kg. Meðalflokkun lamba í félaginu var 9,62 fyrir vöðva og 7,38 fyrir fitu. Vöðvaflokkunin hækkar um 0,29 frá síðasta ári og fitan um 0,34. Besta vöðvaflokkun var hjá Birgittu og Róbert, 11,63.

Allar skýrslurnar má sjá í heild hér á heimasíðunni.

  Að venju var afhentur farandbikar félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút innan félagsins á n.l. hausti og áletraður verðlaunapeningur til eignar.

  Að þessu sinni er það Hákon Þór Tómasson, Staðarbakka, sem er þessa heiðurs aðnjótandi.

Hér er Stefán Lárus formaður að afhenda Hákoni Þór verðlaunin.

 Hrútur þessi hefur nú hlotið nafnið Garpur og er númer 16-164. Hann er einlembingur og vó 52 kg. Ómtölur hans voru þessar: 35 mm ómv 1,7  mm ómf og 5,0 óml. Fótleggur er 108 mm. Stigun hans var: Haus 8,0 - h/h 9,0 - b/útl. 9,0 - bak 9,5 - malir 9,5 - læri 18,0, ull 8,5 - fætur 8,0 og samræmi 8,5  = 88,0 stig. Hrútur þessi er undan Grím 14-955, og Nöðru 14-423.

                                   Garpur 16-164

Tilkynning:

Áður auglýstum aðalfundi, sem vera átti í Brakanda 19. apríl er aflýst.

Þess í stað verður fundurinn haldinn á Þúfnavöllum föstudaginn 21. apríl kl 20:00.

 

Tilkynning:
 

Aðalfundur Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps verður haldinn í Brakanda, miðvikudagskvöldið 19. apríl 2017 kl 20:00.

 Venjubundin aðalfundarstörf. Afhentur verður farandbikar félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút innan félagsins haustið 2016.

 Niðurstöður úr skýrsluhaldinu fyrir síðasta ár eru aðgengilegar hér á heimasíðu félagsins. Gott væri ef félagar prentuðu þetta út og hefðu með sér á fundinn til yfirferðar og umræðna.

 Mætum öll og ræðum félags- og kynbótastarfið.

            Stjórnin. 

Flettingar í dag: 248
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 320
Gestir í gær: 5
Samtals flettingar: 50389
Samtals gestir: 11998
Tölur uppfærðar: 16.5.2024 07:50:03
clockhere

Um félagið

Nafn:

Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps

Farsími:

Unnar Sturluson 779-0269 formaður

Afmælisdagur:

Stofnað 17. mars 1964

Heimilisfang:

Þúfnavellir

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

Unnar Sturluson 462-6754 formaður

Um:

Vef- og ritstjóri heimasíðunnar er Guðmundur Skúlason s. 846-1589

Kennitala:

431008-1650

Bankanúmer:

566-04-250446

Tenglar