Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps vertu velkomin/n á heimasíðu félagsins

Fréttir 2015

1. apríl 2015

  Í kvöld var aðalfundur Sf. Skriðuhrepps haldinn á Syðri-Reistará. Mæting var minni en oft áður, ekki mættir nema 6 félagar, enda margt annað um að vera miðvikudagskvöldið í dimbilviku. Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf m.a. að fara yfir niðurstöður skýrsluhaldsins fyrir síðasta ár. Hér er kafli úr fundargerðinni þar sem fjallað er um helstu niðurstöðurnar. 

  Alls eru í uppgjörinu 1.838 fullorðnar ær, þeim hefur fækkað um 214 frá síðasta ári. Skýrslufærðar voru 424 veturgamlar ær, sem er fækkun um 11 milli ára. Meðalafurðir voru 30,8 kg eftir hverja fullorðna á í félaginu, sem er 1,0 kg meira en haustið 2013. Hjá einstökum félögum voru mestar afurðir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 33,7 kg eftir fullorðna á. Hver veturgömul ær í félaginu skilaði að jafnaði 12,8 kg sem er 0,1 kg meira en á síðasta ári. Mestum afurðum, eins og hjá fullorðnu ánum, skiluðu gemlingarnir hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi eða 17,0 kg. Eftir hverja á í félaginu fæddust 1,86 lömb, en 1,73 komu til nytja. Meðalfallþungi dilka í félaginu var 17,58 kg sem er 0,26 kg meira en haustið 2013. Hæstur fallþungi var hjá Gunnari og Doris í Búðarnesi, 19,9 kg. Meðalflokkun lamba í félaginu var 9,21 fyrir vöðva og 7,14 fyrir fitu. Vöðvaflokkunin hækkar ögn frá síðasta ári en fitan minnkar aðeins. Besta vöðvaflokkun var hjá Guðmundi og Sigrúnu Staðarbakka, 10,69. 

  Allar skýrslurnar má sjá í heild hér á heimasíðunni.

  Að venju var afhentur farandbikar félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút innan félagsins á n.l. hausti og áletraður verðlaunapeningur til eignar. Bikar þessi var gefin félaginu fyrir 10 árun til minningar um Skúla og Margréti á Staðarbakka af afkomendum þeirra en á þessu ári eru liðin 100 ár frá fæðingu þeirra.

  Að þessu sinni eru það hjónin á Ytri-Bægisá: Stefán og Elisabeth, sem eru þessa heiðurs aðnjótandi.

  Hér er Stefán að taka við bikarnum úr hendi Gests Haukssonar, sem var handhafi bikarsins á síðasta ári. Hrútur þessi hefur nú hlotið nafnið Þrepill og er númer 14-744. Hann er tvílembingur og vó 47 kg. Ómtölur hans voru þessar: 32 mm ómv. 4,0 mm ómf. og 5,0 óml. Fótleggur er 109 mm. Stigun hans var: Haus 8,0 - h/h 8,5 - b/útl. 9,0 - bak 9,0 - malir 9,0 - læri 18,5, ull 8,0 - fætur 8,0 og samræmi 9,0 = 87,0 stig. Fjárvís einkunn hans er 134,6. Hrútur þessi er undan Snepli 12-727, faðir hans er Örlygur 11-721  sem er af  góðum ættum nákominn út af sæðingahrútunum Púka og Kveik. Móðir Þrepils er 09-075. 

Nánar um fundinn má svo sjá hér á heimasíðunni undir Fundargerðir.

GTS

 

24. mars 2015

           Tilkynning:

Aðalfundur Sauðfjárræktarfélags Skriðuhrepps verður haldinn á Syðri-Reistará miðvikudagskvöldið 1. apríl 2015 kl. 20:00.

Venjubundin aðalfundarstörf. Afhentur verður farandbikar félagsins fyrir hæst stigaða lambhrút innan félagsins haustið 2014.

Minnt skal á að búið er að senda út í tölvupósti niðurstöður úr skýrsluhaldinu fyrir síðasta ár og gott væri ef félagar prentuðu það út og hefðu með sér á fundinn til yfirferðar og umræðna.

Mætum öll og ræðum félags- og kynbótastarfið.

                       Stjórnin.

 

 25. febr. 2015

  Á þessari mynd er verið að koma með safnið af Flögudal á sl. hausti. Nú er svo afrakstur síðasta sumars kominn hér inn á heimasíðuna. Þar má finna allar skýrslur fyrir Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps, sem hægt er að fá út úr Fjárvís, auk töflu yfir alla skoðaða lambhrúta í félaginu haustið 2014. Óhætt er að segja árið 2014 með bestu árum í uppgjöri Sf. Skriðuhrepps. Meðalfallþungi í félaginu var 17,6 kg og meðaltalið eftir hverja á 30,8 kg. Meðaltala fyrir gerð 9,21 og fyrir fitu 7,14.  

GTS

Megi árið 2015 fela í sér gæfu og gott gengi fyrir sauðfjárbændur !

      Hér er greinileg ofbeit eða hvað? Hlýtur það ekki að vera? Hér eru allavega sauðkindur á ferð!

GTS

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 72
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 43889
Samtals gestir: 11361
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 00:11:50
clockhere

Um félagið

Nafn:

Sauðfjárræktarfélag Skriðuhrepps

Farsími:

Unnar Sturluson 779-0269 formaður

Afmælisdagur:

Stofnað 17. mars 1964

Heimilisfang:

Þúfnavellir

Staðsetning:

Hörgársveit

Heimasími:

Unnar Sturluson 462-6754 formaður

Um:

Vef- og ritstjóri heimasíðunnar er Guðmundur Skúlason s. 846-1589

Kennitala:

431008-1650

Bankanúmer:

566-04-250446

Tenglar